NIB fjármagnar rannsóknir og þróun Emblu Medical
- Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) hefur undirritað 50 milljóna evra fjárfestingarlán til Embla Medical hf. til að fjármagna rannsóknar- og þróunaráætlun félagsins.
- Lánið er til sjö ára og styður Emblu Medical í að þróa nýjar læknisfræðilegar lausnir sem auka hreyfanleika og lífsgæði fólks sem hefur misst útlimi eða býr við skerta hreyfigetu.
Rannsóknar- og þróunaráætlun Emblu miðar einkum að því að beita nýjustu tækni til að létta líf þeirra einstaklinga sem búa við skerta hreyfigetu. Fyrirtækið hefur nýlega sett á markað áhrifamiklar nýjungar, fullkomlega vatnsheldan hnélið, framleiddan úr lífefnum og vélrænan fót sem býður upp á aukinn sveigjanleika, jafnvægi og aðlögunarhæfni fyrir notendur með takmarkaða hreyfigetu.
Vöruþróun fyrirtækisins er viðvarandi ferli sem felst í stöðugum endurbótum á núverandi lausnum og tæknilegum nýjungum. Með þessari fjármögnun mun Embla Medical efla vörusafn sitt enn frekar en meirihluti rannsókna- og þróunarstarfs fer fram í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík.
André Küüsvek, forstjóri NIB: „Stefna NIB um að fjármagna sjálfbæra framtíð og styrkja samfélög okkar er samofin markmiði Emblu um að auka lífsgæði með nýsköpun. Þessi fjárfesting styður nýjustu rannsóknir sem gagnast sjúklingum með beinum hætti og flýta fyrir þróun á læknisfræðilegri tækni sem breytir lífi fólks.“
Embla Medical er leiðandi alþjóðlegur framleiðandi nýstárlegra lausna á sviði hreyfanleika sem hjálpa fólki að lifa lífi án takmarkana®. Embla Medical var stofnað sem Össur árið 1971 og er nú heimili leiðandi vörumerkja í iðnaðinum, Össur, Fior & Gentz, College Park og ForMotion. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Reykjavík á Íslandi en umfangsmikil starfsemi fer fram víðs vegar í Norður- og Suður Ameríku, Evrópu og Asíu. Embla Medical er skráð á Nasdaq Copenhagen undir auðkenninu EMBLA.
NIB er alþjóðleg fjármálastofnun Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Íslands, Lettlands, Litháen, Noregs og Svíþjóðar. Bankinn fjármagnar verkefni sem bæta framleiðni og ávinning umhverfis Norðurlandanna og Eystrasaltsvæðisins. Bankinn er með höfuðstöðvar í Helsinki og með svæðisbundna miðstöð í Riga. NIB er með hæsta mögulega lánshæfismatið AAA/Aaa, hjá S&P Global Ratings og Moody.
Frekari upplýsingar veita
Stefán Friðriksson, Senior Banker, svæðisstjóri fyrir Ísland, +358 50 311 1050, stefan.fridriksson@nib.int
Fridrik Andersen, Senior Banker, +358 10 618 0238, fridrik.andersen@nib.int
Iiris Anttalainen, Communications Officer, +358 10 618 0257, Iiris.Anttalainen@nib.int