Bankaráð: Norræni fjárfestingabankinn vel í stakk búinn til að styðja við Norðurlönd og Eystrasaltsríkin

26.3.2012 Press release

Á ársfundi sínum í Reykjavík lagði bankaráðið áherslu á að Norræni fjárfestingabankinn væri vel í stakk búinn til að liðsinna lántakendum á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Langtímafjármögnun verður áfram torsótt vegna óvissu á fjármálamörkuðum og hertari reglna um starfsemi fjármálastofnana. Þess er vænst að fjárfestingar verði áfram fremur hægar en mörg fyrirtæki munu þurfa á endurfjármögnun að halda.

„Með fjárhagsstyrk sínum og hlutafjáraukningu á síðasta ári er hinn 35 ára gamli Norræni fjárfestingabanki vel í stakk búinn til að styðja við Norðurlönd og Eystrasaltsríkin með fjármögnun verkefna sem efla samkeppni og varða umhverfismál. Fjármálakreppan er ekki yfirstaðin og áfram er fyrirsjáanleg þörf á mikilli endurfjármögnum í aðildarríkjum bankans. Því fagnar bankaráðið þeirri ákvörðun Norræna fjárfestingabankans að stofna tímabundinn lánaflokk til að sinna þessu verkefni sem og fyrirhuguðum auknum lánveitingum á árinu 2012″, segir Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra Íslands, sem er formaður bankaráðsins.

Á árinu 2012 verða forstjóraskipti hjá Norræna fjárfestingabankanum. Í apríl tekur Henrik Normann við af Johnny Åkerholm, sem hefur verið bankastjóri Norræna fjárfestingabankans síðan í apríl 2005.

„Bankaráðið vill nota þetta tækifæri og þakka Johnny Åkerholm fyrir störf hans. Á allra síðustu árum hefur bankinn náð miklum árangri við að fylgja enn skýrar eftir því hlutverki sem aðildarríki bankans hafa sett honum. Auk þess hefur bankinn skerpt áherslur sínar varðandi starfsemi í ríkjum sem ekki eiga aðild að bankanum. Henrik Normann mun taka við traustri stofnun sem hefur mikilvægu hlutverki að gegna í efnahagslífi Norðurlandanna og Eystrasaltssvæðisins”, segir Oddný.

Á fundinum í Reykjavík samþykkti bankaráðið ársreikninga bankans fyrir árið 2011. Hagnaður af rekstri Norræna fjárfestingabankans var 194 milljónir evra. Hagnaðurinn verður fluttur yfir í almennan áhættusjóð sem hluti af eigin fé.
Í bankaráði Norræna fjárfestingarbankans sitja fjármálaráðherrar aðildarríkjanna. Hefur bankaráðiðútnefnt fjármálaráðherra Litháen sem formann ráðsins frá 1. júní 2012 til 31. maí 2013.

Norræni fjárfestingarbankinn er sameiginleg alþjóðleg fjármálastofnun þeirra samtals átta ríkja sem teljast til Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Hann veitir langtímafjármögnun til verkefna tengdum orku, umhverfi, flutningum og fjarskiptum og til nýsköpunarverkefna – hann fjármagnar verkefni sem styrkja samkeppnishæfni og efla umhverfismál. Norræni fjárfestingarbankinn fær hæstu mögulega lánshæfiseinkunn, AAA/Aaa, hjá leiðandi matsfyrirtækjum, Standard & Poor’s og Moody’s.

Johnny Åkerholm, bankastjóri Norræna fjárfestingabankans, í síma +358 10 618 001,

Jukka Ahonen, yfirmaður samskiptasviðs, í síma +358 10 618 0295,