Norræni fjárfestingarbankinn (NIB)

Alþjóðlega fjármálastofnun Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna 

NIB er alþjóðleg fjármálastofnun í eigu Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Íslands, Lettlands, Litháens, Noregs og Svíþjóðar.  

Markmið Norræna fjárfestingabankans er að stuðla að velmegun og sjálfbærni á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum. Bankinn fjármagnar verkefni sem styrkja samkeppnishæfni, sjálfbærni og viðnámsþrótt á Norðurlöndum og Eystrasaltssvæðinu. 

Bankinn býður viðskiptavinum sínum í einkageiranum sem og opinberum aðilum langtímalán og ábyrgðir á markaðskjörum. Verkefni sem til greina kemur að fjármagna eru metin með sjálfbærni í huga. 

Norræni fjárfestingabankinn aflar fjármagns á alþjóðlegum fjármálamörkuðum til að fjármagna útlánastarfsemi sína. Skuldabréf bankans hafa hæstu mögulegu lánshæfiseinkunn. 

NIB styrkir svæðisbundna samkeppnishæfni með því að fjármagna:  

  • nýsköpun og tækniframfarir
  • innviði
  • mannauð og jöfn félags- og efnahagsleg tækifæri
  • skilvirkni markaðarins og viðskiptaumhverfi

Fjármögnun NIB á sviði sjálfbærni beinist að: 

  • mótvægisaðgerðum og aðlögun að loftslagsbreytingum
  • sjálfbærri nýtingu og vernd vatnsauðlinda
  • umskiptum yfir í hringrásarhagkerfi
  • mengunarvörnum
  • endurheimt líffræðilegrar fjölbreytni og vistkerfa

NIB styður viðnámsþrótt svæðisins með því að fjármagna: 

  • mikilvæga innviði og orkuöryggi
  • aðfangakeðjur með góðan viðnámsþrótt og öruggt aðgengi að auðlindum
  • varnar- og öryggisgetu
  • geim- og netöryggi