Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) fjármagnar verkefni sem styrkja samkeppnishæfni og bæta umhverfið. Bankinn býður viðskiptavinum í einkageiranum og opinberum geira langtímalán og tryggingar á samkeppnishæfum kjörum. NIB einbeitir sér sérstaklega að fjórum sviðum:
Verkefni sem til greina kemur að fjármagna eru skoðuð með sjálfbæran vöxt í huga. Bankinn greinir áhrif þeirra á samkeppnishæfni og umhverfið sem og óbein áhrif þeirra á hagkerfið og samfélagið.
NIB er alþjóðleg fjármálastofnun í eigu Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Íslands, Lettlands, Litháens, Noregs og Svíþjóðar. Bankinn stundar lánastarfsemi bæði í eigendalöndunum og í nývaxtarlöndum.
NIB byggir upp sjóði sína með lánastarfsemi á alþjóðlegum mörkuðum. Skuldabréf hans fá hæstu mögulegu lánshæfiseinkunn.