NIB Nordic Investment Bank
26 Mar 2012

Bankaráð: Norræni fjárfestingabankinn vel í stakk búinn til að styðja við Norðurlönd og Eystrasaltsríkin

Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra Íslands

Foto: Bragi Þór Jósefsson

Oddny G. Hardardottir

Á ársfundi sínum í Reykjavík lagði bankaráðið áherslu á að Norræni fjárfestingabankinn væri vel í stakk búinn til að liðsinna lántakendum á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Langtímafjármögnun verður áfram torsótt vegna óvissu á fjármálamörkuðum og hertari reglna um starfsemi fjármálastofnana. Þess er vænst að fjárfestingar verði áfram fremur hægar en mörg fyrirtæki munu þurfa á endurfjármögnun að halda.

„Með fjárhagsstyrk sínum og hlutafjáraukningu á síðasta ári er hinn 35 ára gamli Norræni fjárfestingabanki vel í stakk búinn til að styðja við Norðurlönd og Eystrasaltsríkin með fjármögnun verkefna sem efla samkeppni og varða umhverfismál. Fjármálakreppan er ekki yfirstaðin og áfram er fyrirsjáanleg þörf á mikilli endurfjármögnum í aðildarríkjum bankans. Því fagnar bankaráðið þeirri ákvörðun Norræna fjárfestingabankans að stofna tímabundinn lánaflokk til að sinna þessu verkefni sem og fyrirhuguðum auknum lánveitingum á árinu 2012", segir Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra Íslands, sem er formaður bankaráðsins.

Á árinu 2012 verða forstjóraskipti hjá Norræna fjárfestingabankanum. Í apríl tekur Henrik Normann við af Johnny Åkerholm, sem hefur verið bankastjóri Norræna fjárfestingabankans síðan í apríl 2005.

„Bankaráðið vill nota þetta tækifæri og þakka Johnny Åkerholm fyrir störf hans. Á allra síðustu árum hefur bankinn náð miklum árangri við að fylgja enn skýrar eftir því hlutverki sem aðildarríki bankans hafa sett honum. Auk þess hefur bankinn skerpt áherslur sínar varðandi starfsemi í ríkjum sem ekki eiga aðild að bankanum. Henrik Normann mun taka við traustri stofnun sem hefur mikilvægu hlutverki að gegna í efnahagslífi Norðurlandanna og Eystrasaltssvæðisins", segir Oddný.

Á fundinum í Reykjavík samþykkti bankaráðið ársreikninga bankans fyrir árið 2011. Hagnaður af rekstri Norræna fjárfestingabankans var 194 milljónir evra. Hagnaðurinn verður fluttur yfir í almennan áhættusjóð sem hluti af eigin fé.
Í bankaráði Norræna fjárfestingarbankans sitja fjármálaráðherrar aðildarríkjanna. Hefur bankaráðiðútnefnt fjármálaráðherra Litháen sem formann ráðsins frá 1. júní 2012 til 31. maí 2013.

Norræni fjárfestingarbankinn er sameiginleg alþjóðleg fjármálastofnun þeirra samtals átta ríkja sem teljast til Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Hann veitir langtímafjármögnun til verkefna tengdum orku, umhverfi, flutningum og fjarskiptum og til nýsköpunarverkefna - hann fjármagnar verkefni sem styrkja samkeppnishæfni og efla umhverfismál. Norræni fjárfestingarbankinn fær hæstu mögulega lánshæfiseinkunn, AAA/Aaa, hjá leiðandi matsfyrirtækjum, Standard & Poor's og Moody's.

Johnny Åkerholm, bankastjóri Norræna fjárfestingabankans, í síma +358 10 618 001,

Jukka Ahonen, yfirmaður samskiptasviðs, í síma +358 10 618 0295,  

  • AR2012

News

NIB loan to large wind farm project in Sweden

NIB has provided a EUR 61 million loan to DNB Bank ASA. The funds will be onlent to finance one of northern Europe’s largest onshore wind farms, in Jädraås, eastern Sweden.

22 May 2013

NIB lends for upgrade of east-west railway corridor in Latvia

NIB and Latvia’s state railway company have signed a new loan for upgrading a railway section in the country’s east-west transport corridor.

22 May 2013

NIB-financed waste-to-energy plant launched in Lithuania

Finnish Fortum has inaugurated the first waste-to-energy combined heat and power plant in the Baltic countries.

15 May 2013


MORE NEWS

Related News

Board of Governors: NIB well equipped to support Nordic-Baltic region

At its annual meeting, NIB's Board of Governors stressed that the Bank is well equipped to support borrowers in the Nordic-Baltic region.

26 Mar 2012


MORE NEWS